Eldra efni
- 2012
- Maí (9)
- Apríl (38)
- Mars (54)
- Febrúar (10)
- Janúar (34)
- 2011
- Desember (9)
- Nóvember (8)
- Október (15)
- September (21)
- Júlí (2)
- Júní (35)
- Maí (39)
- Apríl (32)
- Mars (71)
- Febrúar (48)
- Janúar (28)
- 2010
- Desember (22)
- Nóvember (46)
- Október (46)
- September (52)
- Ágúst (87)
- Júlí (27)
- Júní (67)
- Maí (49)
- Apríl (64)
- Mars (25)
- Febrúar (28)
- Janúar (83)
- 2009
- Desember (70)
- Nóvember (10)
- Október (26)
- September (38)
- Ágúst (19)
- Júlí (36)
- Júní (16)
- Maí (47)
- Apríl (17)
- Mars (28)
- Febrúar (47)
- Janúar (17)
- 2008
- Desember (18)
- Nóvember (8)
- Október (6)
- September (2)
- Ágúst (19)
- Júlí (4)
- Júní (1)
- Maí (20)
- Apríl (11)
- Mars (2)
- Febrúar (12)
- Janúar (19)
- 2007
Tenglar
- AIS staðsetning
- Marinetraffic
- Bloggið
- Gummi Gísla
- Kristinn Pétursson
- Níels A Ársælsson
- Ólafur Ragnarsson
- Palli Jó.
- Þorbjörn Víglundsson
- Flickr
- Davíð Már Sigurðsson
- Guðmundur Falk
- Tói Vídó
- Fótbolti
- Fótbolti.net
- Manchester United
- Fréttasíður
- 640.is Norðurþing og nágrenni
- Aflafréttir Gísla Reynis
- Austurglugginn
- Bæjarins besta
- Mbl.is
- RÚV
- Sax
- Skip.is
- Víkurfréttir
- Vísir.is
- Ljósmyndarar
- Arnbjörn Eiríksson
- Ásmundur Jónsson
- Davíð Már á facebook
- Davíð Már Sigurðsson
- Fjölskyldan Gauksmýri
- Jón Grunnvíkingur
- Marinó Thorlasius
- Myndir frá Neskaupstað
- Photos.is
- Ríkarður Ríkarðsson
- Tói Vídó
- Skip og bátar.fróðleikur og myndir.
- Bergþór Gunnlaugsson
- Brynjar Arnarsson
- Grétar Þór Sæþórsson
- Guðmundur St (gamla síðan)
- Guðmundur St.
- Gunnar Jóhannsson
- Hafliði Óskarsson
- Hafþór Hreiðarsson
- Ingólfur Þorleifsson
- Jón Páll Ásgeirsson
- Jósef og Guðmundur
- Markús Karl Valsson
- Ólafur Ragnarsson
- Óskar Franz
- Ragnar Emilsson
- Ragnar Pálsson
- Siggi Davíðs
- Skipa og bátamyndir
- Tryggvi Sigurðsson
- Vigfús Markússon
- Þorgeir Baldursson
- Þór Jónsson
- Þóroddur Sævar
- Skipasíður
- Aðalsteinn Jónsson SU 11
- Arnar HU 1
- Álsey VE 2
- Ásgrímur Halldórsson SF 250
- Faxi RE 9
- Guðmundur í Nesi RE 13
- Hákon EA 148
- Hoffell SU 80
- Huginn VE 55
- Jóhanna Gísladóttir ÍS-7
- Jón Kjartansson SU 111
- Júlíus Geirmundsson ÍS
- Kleifaberg ÓF 2
- Þór HF 4
- Veður
- Belgingur
- Einar Sveinbjörnsson
- Veðurstofan
Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 839
Gestir í gær: 191
Samtals flettingar: 575350
Samtals gestir: 163690
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:59:40
Færslur: 2012 Janúar
28.01.2012 22:16
Eyfell ÞH brennur
Um 1990 kom upp eldur í Eyfelli ÞH en ég er bara ekki með nákvæma tímasetningu á atburðinum en báturinn gjöreyðilagðist í brunanum sem mig minnir að hafa komið út frá kabyssu.Báturinn var smíðaður á Siglufirði 1962 og hét upphaflega Dúa SI og bar einnig nöfnin Njáll SI og Dúa SK áður en báturinn fékk nafnið Eyfell ÞH 76.Sverrir Hjalta eignast bátinn snemma árs 1988 en samkvæmt Íslensk skip þá átti Síldarvinnslan bátinn þegar hann brann eða frá ágúst 1990.



Skrifað af Valur
28.01.2012 21:43
2733 - Von GK-113
Von GK landaði þann 23 janúar 5,1 tonni og þar af var þorskur 4,3 tonn.








Skrifað af Valur
28.01.2012 20:23
2106 - Addi afi GK-97
Addi afi GK kemur til löndunar í Sandgerði þann 25 janúar og lönduðu þeir þá 2,4 tonnum og í dag 4,5 á 32 bala.




Skrifað af Valur
28.01.2012 19:37
1890 - Una SU-3
Una SU landaði 2,6 tonnum í dag á 30 bala í Sandgerði






Skrifað af Valur
28.01.2012 19:06
2669 - Stella GK-23
Stella GK landaði tæpum 2 tonnum í dag í Sandgerði.






Skrifað af Valur
28.01.2012 18:27
7339 - Abby GK-56
Abby GK landaði í dag nokkrum fiskum en Beggi sagðist hafa verið stutt úti enda veður farið að versna.




Skrifað af Valur
27.01.2012 19:54
Nýr bátur í Neskaupstað
Björgvin Sveinsson hefur fest kaup á Stubb EA 48 frá Dalvík en báturinn er smíðaður í Kópavogi 1982.Báturinn var upphaflega með 45 hp.BMW vél en í honum í dag er 79 hp.Yanmar vél.Nöfnin sem báturinn hefur borið eru: Norma VE og KE,Nanna EA,ÍS og KÓ og núverandi nafn Stubbur EA.Samkvæmt Björgvin sjálfum þá er stefnan tekin á strandveiðar í sumar.Óska ég Björgvini innilega til hamingju með nýja bátinn.

Skrifað af Valur
26.01.2012 19:33
1666 - Svala Dís KE-29
Svala Dís KE siglir hér til löndunar í Sandgerðis þann 23.janúar en báturinn landaði 2,3 tonnum mest þorsk og ýsu eða tæpt tonn af hvoru.


Skrifað af Valur
25.01.2012 23:31
2746 - Bergur Vigfús GK-43
Bergur Vigfús GK landaði 4,2 tonnum á 47 bala í Sandgerði þann 23.jan og var þorskur 2,2 tonn og ýsa um 1 tonn.






Skrifað af Valur
25.01.2012 22:49
2711 - Lúkas ÍS-71
Þessi bátur ber að vísu nafnið Maggi Jóns KE-77 og kom í staðinn fyrir stálbát sem nú hefur verið seldur austur á Neskaupstað.Báturinn er hér að koma að landi í Sandgerði þann 23 janúar og landaði 2,8 tonnum,þar af var þorskur 1,5.



Skrifað af Valur
25.01.2012 12:31
Vetur konungur heimsækir Garðinn
Það hefur svo sem ekki farið framhjá landsmönnum að á suðvestuhorninu hefur ríkt svolítið sem við landsbyggðarpakkið köllum vetur.Í fjölmiðlum hefur verið gúrkutíð þar sem lesendur hafa verið hvattir til að senda inn myndir af "ástandinu" eins og maður kallar þetta glottandi enda varla sést hér snjór að ráði að manni skilst í einhver 20-25 ár.Þó svo maður sé alinn upp við snjó upp að herðarblöðum þá er ekki þar með sagt að maður fagni þessum andskota en ekki kvartar maður heldur nema þá undan mokstri sem virðist vera æði misjafn eftir bæjarfélögum hérna á svæðinu.Ég skrapp þó aðeins út með vélina og læt hér 4 myndir fylgja sem ég tók ásamt mynd frá Laugu Sidda sem tekin er á Oddskarði árið 1951.








Tvær seinustu myndirnar eru teknar í götunni þar sem ég bý en ég bara verð að hrósa starfsmönnum sveitafélagsins fyrir frábær vinnubrögð en þeir hjá Reykjanesbæ mættu taka þá til fyrirmyndar en hér hefur verið skafið vel þannig að engir hryggir hafa myndast eins og algengt er í íbúðargötum í Reykjanesbæ með tilheyrandi slysahættu.


Þessi mynd sem ég fékk hjá Laugu Sidda ætti að minna mann á að vera ekki að kvarta mikið en myndin er sennilega tekin Norðfjarðarmegin við Oddskarð,neðarlega í brekkunni þegar keyrt er út úr Oddskarðsgöngum.Sjálfur man ég eftir svipuðu ástandi á skarðinu þegar ég var að alast upp á Neskaupstað.
Skrifað af Valur
24.01.2012 19:29
Ella á Hofi málar mynd eftir mig.
Elín Anna Hermannsdóttir eða Ella á Hofi eins hún er kölluð í daglegu tali er liðtækur listmálari og á facebook síðu hennar má sjá myndir af verkum hennar og þar á meðal mynd sem hún málaði eftir ljósmynd frá mér sem ég tók í Lambastaðavör í Garðinum í apríl 2011.Samkvæmt Ellu að þá seldist myndin nánast strax og hún var sett upp í blómabúðinni Laufskálanum Neskaupstað

Málverk eftir Ellu á Hofi.

Frummyndin tekin í Lambastaðarvör 27 apríl 2011

Frummyndin tekin í Lambastaðarvör 27 apríl 2011
Skrifað af Valur
24.01.2012 17:54
Nýr bátur á Neskaupstað
Einar Hálfdánar er samkvæmt heimildum búinn að ganga frá kaupum á Stundvís ÍS 883.Báturinn var smíðaður í Garðabæ 1987 og hét í upphafi Stundvís ÍS en einnig bar báturinn nöfnin Linni SH,Guðrún HF og Maggi Jóns KE en fékk svo nafnið Stundvís ÍS aftur eftir að bátnum var skipt á Lúkas ÍS sem nú fær nafnið Maggi Jóns KE.Báturinn var breikkaður 1988 og lengdur og hækkaður 1992.Báturinn er 19,2 brl,14,7 m.langur og og 4 m.breiður með Volvo penta 237 hp vél.Ekki hef ég það staðfest að báturinn fái nafnið Inga NK 4 þó mig gruni það samt en samkvæmt heimildum verður báturinn afhentur austur á Neskaupstað en ekki fylgdi með hvenær það verður.

Báturinn liggur hér utan á Sævari KE í Keflavík.

Maggi Jóns KE á leið undir krana í Sandgerði 30.apríl 2011

Báturinn liggur hér utan á Sævari KE í Keflavík.

Maggi Jóns KE á leið undir krana í Sandgerði 30.apríl 2011
Skrifað af Valur
23.01.2012 22:19
2553 Bjössi RE-277
Bjössi RE landaði í Sandgerði í dag eins og margir aðrir en þessi hefur ekki landað í Sandgerði síðan 22 febrúar á seinasta ári.




Skrifað af Valur
23.01.2012 18:59
2714 - Óli Gísla GK-112
Óli Gísla GK landaði í Sandgerði í dag en mér er ekki kunnugt um aflabrögð.




Ég er ekki sáttur við hvað 123.is þjappar myndunum svo mikið að það mætti halda að þetta væru allt símamyndir enda rosalegur munur á myndunum í tölvunni hjá mér og þegar þær eru komnar inn á 123.is.Verð sennilega að fara að nota flickerið aftur.
Skrifað af Valur
