Nafn:

Valur Björn Línberg

Staðsetning:

Suðurnesin

Tenglar

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 839
Gestir í gær: 191
Samtals flettingar: 575350
Samtals gestir: 163690
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:59:40

16.05.2012 20:41

Nóg að gera í dag

Dagurinn í dag var ansi góður en stífar norðanáttir hafa verið undanfarna 2 daga með haugabrælu á Lóninu.Í gær komu til starfa Jóhann Örn sem verður skipherra rétt eins og ég nema að hann er með Lordinn og svo Ingunn sem verður guide og bætast við flóru algjörra snillinga sem þarna vinna.Í dag fékk ég svo yngsta farþegann sem ég hef fengið hingað til en 10 mánaða gutti kom með foreldrum sínum í eina ferð og hafði greinilega gaman af enda heyrðist ekkert í jaxlinum.

Í faðmi mömmu en þessi gutti er sá yngsti sem ég hef fengið um borð.

Ingunn og Jói Lord að gera sig klára til að vesta farþegana.

Jói Lord mátar fyrir mig skipherralúguna og Ágúst og Ingunn gera klárt fyrir sjóferð.

Ágúst guidar eins og herforingi í einni af ferðum dagsins.

11.05.2012 21:02

Rólegt í dag!

Dagurinn í dag var frekar rólegur nema kanski seinasta ferðin þar sem var farið í "kolvitlausu" veðri eða kannski á maður að segja að túristarnir fengu að kynnast kaldaskít í þeirri ferð.Meðfylgjandi mynd er af einum klaka sem snéri sér í dag.
Lónið 11.05

10.05.2012 20:40

Þemað í dag voru selir.

Frekar rólegt í dag en selir voru í aðalhlutverki á lóninu í dag.Það var ekkert sérlega erfitt að komast að þeim en það voru þó yngri selirnir sem létu sig hverfa þegar við nálguðumst enda sennilega óvanari þessum túrhestum á þvælingi um allan sjó þarna á lóninu.Læt hér fylgja 3 selamyndir og eina af Ronna í actioni.
Lónið 10.05

Lónið 10.05

Lónið 10.05

Lónið 10.05

09.05.2012 20:28

Mættur aftur

Þá er maður mættur aftur austur og er óhætt að segja að manni hafi nú ekki litist á blikuna þegar austur var komið enda snjór yfir öllu þegar á staðinn var komið.Ég set hér inn einar 8 myndir sem ég tók meðal annars áður en ég fór í frí,í gær og í dag en þá var maður með tilraunir með filter en ég var ekkert sérlega sáttur með þá útkomu.
Jökulsárlón
Þessi var tekin þann 6.maí áður en ég fór í frí.
Reynivellir
Svona var aðkoman á Reynivöllum þegar ég kom í hlað seint í gær.
Reynivellir
Á Reynivöllum.
Reynivellir
Á Reynivöllum.
Jökulsárlón
Tilraun með filter á Lóninu í dag.
Jökulsárlón
Tilraun með filter á Lóninu í dag.
Jökull
Svo er hér ein bryggjumynd af Jökli sem ég er að sigla þessa dagana.

07.05.2012 00:37

Jökulsárlón í dag

Í dag þá fór ég bæði túra á sodiak og á Jökli en var ekki duglegur með vélina,enda frekar kalt.Hér eru þó nokkrar myndir sem ég tók meðal annars af selnum Snorra,klaka á lóninu og svo Skógarfossi á leiðinni heim.
Snorri selur-2

Snorri selur-3

Snorri selur-4

Skógarfoss

Lónið

05.05.2012 21:20

Rólegt í dag

Dagurinn í dag var frekar rólegur miðað við dagana á undan,ég fór ekki nema 3 túra á hjólabátnum Jökul og fór svo 2 túra á sodiak.Myndirnar sem ég er búinn að vera að birta hef ég rennt í gegnum picasa2 og er í frekar lélegri tölvu eins og er en vonandi stendur þetta til bóta.Ég verð á Lóninu á morgun og svo er ég kominn í 2.daga frí og mun svo mæta ferskur til baka á miðvikudaginn.
Jökulsárlón

Jökulsárlón

Jökulsárlón

Jökulsárlón

Jökulsárlón

04.05.2012 21:27

Ronni í dag!!

Þrjár myndir af Ronna og ein af ís eftir daginn í dag.
Ronni

Ronni

Ronni

klaki

03.05.2012 22:31

Lónið í dag

Hér koma fjórar myndir af lóninu frá því í dag en nóg var að gera og gaman að sjá hvað landslagið breytist á ekki löngum tíma hérna.Tvær myndir eru af Arnari vinnufélaga mínum sem byrjaði í gær eins og ég og mun vera á sodiak bátum í sumar sem fylgja okkur á hjólabátunum þegar við erum á ferðinni.Ég ætla að reyna að birta í það minnsta eina færslu á dag úr vinnuni í sumar en þarna er af nógu að taka.
Arnar

Arnar

Jökulsárlón

Jökulsárlón

02.05.2012 21:23

Jökulsárlón í dag

Þá er maður byrjaður í nýrri vinnu og var fyrsti dagurinn í dag.Eftir 2 siglingar með Runólfi Haukssyni skipstjóra þá henti hann mér í djúpu laugina og fór ég alfarið einn með farþega í 3 siglingar eftir það ásamt guide.Það verður að viðurkennast að það er svolítið sérstakt að sigla þessum bátum en þetta var bara gaman í dag og einstakt veður sem við fengum.Hér koma nokkrar myndir sem ég tók á Lóninu og af Jökli sem er eini báturinn sem er tiltækur eins og er en verið er að skipta um vélar í hinum bátunum.
Jökull

Jökulsárlón

Jökulsárlón

Jökulsárlón

Jökulsárlón

Jökulsárlón

28.04.2012 17:02

Jökulsárlón

Þá er það komið á hreint en þetta myndband sýnir við hvað ég verð að starfa við í sumar.Það er mikil tilhlökkun hér á bæ en spurning hvort bátamyndirnar verði ekki frekar einhæfar í sumar.Fyrsti dagurinn í nýju vinnuni verður 2.maí og verður gaman að prufa eitthvað nýtt og maður talar nú ekki um félagsskapinn sem mun renna þarna í gegn í sumar.
 

27.04.2012 19:25

7255 - Brynjar KE-127

Nokkrar myndir af Brynjari KE í Sandgerði þann 23.04 en báturinn landaði 2,8 tonnum þann daginn.
Brynjar KE   Brynjar KE
Brynjar KE   Brynjar KE

26.04.2012 12:18

Fleiri myndir frá Sandgerði 23.04

Hafdís GK   Hafdís GK
Hafdís GK 202
Fagravík GK   Fagravík GK
Fagravík GK 161
Stakasteinn GK   Stakasteinn GK
Stakasteinn GK 132
Máni GK   Máni GK
Máni GK 109

25.04.2012 22:04

Myndir frá Sandgerði 23.04

Það var mikið líf í Sandgerði 23 þessa mánaðar en eins og ég hef áður nefnt er búið að vera mikið fiskirí og hafa handfæraveiðarnar staðið svolítið uppúr enda fjöldi báta á færum eins og er.Línuveiðin er góð hef ég heyrt en ekki samt á við febrúarmánuð sem var frábær þrátt fyrir endalausar brælur.
Addi afi GK   Addi afi GK
Addi afi GK 97
Maggi Jóns KE   Maggi Jóns KE
Maggi Jóns KE 77
Magnús GK   Magnús GK
Magnús GK 64
Garri BA   Ísbjörn GK
Garri BA 90 og Ísbjörn GK 87

25.04.2012 21:06

1324 - Hrafnreyður KÓ-100

Hrafnreyður KÓ lá við bryggju í Njarðvík og þurfti að færa sig til fyrir gamla varðskipinu Þór sem kom til Njarðvíkur í dag.Eitthvað hafa eigendur lífgað upp á bátinn en ekki mátti birta mynd af honum án þess að menn hraunuðu yfir útliti bátsins en kannski má segja að menn hafi haft eitthvað fyrir sér í því en báturinn lítur töluvert betur út í dag þó það eigi eftir að sletta smá málningu í viðbót á hann.
Hrafnreyður KÓ

Hrafnreyður KÓ

25.04.2012 20:15

1587 - Sævar KE-5

Hér koma 3 myndir af Sævari KE koma inn til hafnar í Keflavík í dag.
Sævar KE

Sævar KE

Sævar KE