Eldra efni
- 2012
- Maí (9)
- Apríl (38)
- Mars (54)
- Febrúar (10)
- Janúar (34)
- 2011
- Desember (9)
- Nóvember (8)
- Október (15)
- September (21)
- Júlí (2)
- Júní (35)
- Maí (39)
- Apríl (32)
- Mars (71)
- Febrúar (48)
- Janúar (28)
- 2010
- Desember (22)
- Nóvember (46)
- Október (46)
- September (52)
- Ágúst (87)
- Júlí (27)
- Júní (67)
- Maí (49)
- Apríl (64)
- Mars (25)
- Febrúar (28)
- Janúar (83)
- 2009
- Desember (70)
- Nóvember (10)
- Október (26)
- September (38)
- Ágúst (19)
- Júlí (36)
- Júní (16)
- Maí (47)
- Apríl (17)
- Mars (28)
- Febrúar (47)
- Janúar (17)
- 2008
- Desember (18)
- Nóvember (8)
- Október (6)
- September (2)
- Ágúst (19)
- Júlí (4)
- Júní (1)
- Maí (20)
- Apríl (11)
- Mars (2)
- Febrúar (12)
- Janúar (19)
- 2007
Tenglar
- AIS staðsetning
- Marinetraffic
- Bloggið
- Gummi Gísla
- Kristinn Pétursson
- Níels A Ársælsson
- Ólafur Ragnarsson
- Palli Jó.
- Þorbjörn Víglundsson
- Flickr
- Davíð Már Sigurðsson
- Guðmundur Falk
- Tói Vídó
- Fótbolti
- Fótbolti.net
- Manchester United
- Fréttasíður
- 640.is Norðurþing og nágrenni
- Aflafréttir Gísla Reynis
- Austurglugginn
- Bæjarins besta
- Mbl.is
- RÚV
- Sax
- Skip.is
- Víkurfréttir
- Vísir.is
- Ljósmyndarar
- Arnbjörn Eiríksson
- Ásmundur Jónsson
- Davíð Már á facebook
- Davíð Már Sigurðsson
- Fjölskyldan Gauksmýri
- Jón Grunnvíkingur
- Marinó Thorlasius
- Myndir frá Neskaupstað
- Photos.is
- Ríkarður Ríkarðsson
- Tói Vídó
- Skip og bátar.fróðleikur og myndir.
- Bergþór Gunnlaugsson
- Brynjar Arnarsson
- Grétar Þór Sæþórsson
- Guðmundur St (gamla síðan)
- Guðmundur St.
- Gunnar Jóhannsson
- Hafliði Óskarsson
- Hafþór Hreiðarsson
- Ingólfur Þorleifsson
- Jón Páll Ásgeirsson
- Jósef og Guðmundur
- Markús Karl Valsson
- Ólafur Ragnarsson
- Óskar Franz
- Ragnar Emilsson
- Ragnar Pálsson
- Siggi Davíðs
- Skipa og bátamyndir
- Tryggvi Sigurðsson
- Vigfús Markússon
- Þorgeir Baldursson
- Þór Jónsson
- Þóroddur Sævar
- Skipasíður
- Aðalsteinn Jónsson SU 11
- Arnar HU 1
- Álsey VE 2
- Ásgrímur Halldórsson SF 250
- Faxi RE 9
- Guðmundur í Nesi RE 13
- Hákon EA 148
- Hoffell SU 80
- Huginn VE 55
- Jóhanna Gísladóttir ÍS-7
- Jón Kjartansson SU 111
- Júlíus Geirmundsson ÍS
- Kleifaberg ÓF 2
- Þór HF 4
- Veður
- Belgingur
- Einar Sveinbjörnsson
- Veðurstofan
Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 839
Gestir í gær: 191
Samtals flettingar: 575350
Samtals gestir: 163690
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:59:40
Flokkur: Gamlar myndir
12.12.2011 20:50
Djúpavík árið 1935
Halldór Sverrison var ekki í vandræðum með að svara þessu en þessi mynd er tekin í Djúpuvík árið 1935.Myndin birtist í viðtali við Auðun Auðunsson skipstjóra í sjómannablaðinu Víkingi,10.tbl.1977 undir fyrirsögninni:Byrja ekki ótilneyddur með nýtt skip,nema á laugardegi.

Skrifað af Valur
12.12.2011 00:00
Stígandi NK 33 fórst fyrir 40 árum.
Í dag eru 40 ár frá því að Stígandi NK fórstí róðri 20 sml.austsuðaustur af Norðfjarðarhorni og með honum 2 menn en einn bjargaðist eftir 13 klukkutíma veru í gúmbjörgunarbát.Með bátnum fórust tveir bræður en faðir þeirra Halldór Einarsson hafði fyrir slysið misst tvo aðra syni.Stígandi NK hélt í róður aðfaranótt sunnudagsins 12 desember 1971 og lagði línuna 20 sml.ASA af Norðfjarðarhorni.Byrjað var að draga línuna um 09:30 um morgunin í sæmilegu veðri.Veður fór versnandi með morgninum og uppúr hádegi var komin 8-9 vindstig og slæmur sjór.

Stígandi NK-33
Um kl.13:30 fékk báturinn á sig brot og lagðist á hliðina svo að möstur námu við sjó og hvolfdi svo skömmu síðar.Eiríkur Trausti Stefánsson 22ára gamall háseti komst lífs af úr þessu slysi og í viðtali við Morgunblaðið 18 desember 1971 sem þessi færsla er byggð á rekur hann veru sína í gúmbátnum í þessa 13 klukkutíma eða allt þar til að Barði NK kom honum til bjargar um kl 3 aðfararnótt 13 desember.

Einar Halldórsson á rúllunni á Stíganda NK 33
Stígandi NK-33
Um kl.13:30 fékk báturinn á sig brot og lagðist á hliðina svo að möstur námu við sjó og hvolfdi svo skömmu síðar.Eiríkur Trausti Stefánsson 22ára gamall háseti komst lífs af úr þessu slysi og í viðtali við Morgunblaðið 18 desember 1971 sem þessi færsla er byggð á rekur hann veru sína í gúmbátnum í þessa 13 klukkutíma eða allt þar til að Barði NK kom honum til bjargar um kl 3 aðfararnótt 13 desember.
Einar Halldórsson á rúllunni á Stíganda NK 33
Bræðurnir sem fórust með Stíganda NK-33 hétu:
Björgvin Halldórsson skipstjóri,fæddur 30 ágúst 1941,ókvæntur og barnlaus.
Einar Halldórsson vélstjóri,fæddur 5.október 1935,kvæntur,fjögurra barna faðir.

Björgvin Halldórsson skipstjóri,fæddur 30 ágúst 1941,ókvæntur og barnlaus.
Einar Halldórsson vélstjóri,fæddur 5.október 1935,kvæntur,fjögurra barna faðir.
Björn NK-33
Báturinn var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1923 og var 17 brl.með 30 ha.Union vél.Gísli Kristjánsson frá Neskaupstað átti bátinn frá 18.mars 1929.1940 var sett í bátinn ha.Kelvin dísel vél.Bræðurnin Þorsteinn og Ársæll Júlíussynir eignast bátinn í byrjun október 1937 og gera hann út til ársins 1955 er Helgi Símonarsson og Einar Jónsson kaupa bátinn í mars það ár.Í apríl 1957 eignast Þorvaldur Einarsson bátinn og 1962 er sett í hann 86 ha.Perkins dísel vél.Feðgarnir Halldór Einarsson og Björgvin Halldórsson eignast bátinn 1 september 1963 og gera hann út allt þar til báturinn fórst í desember 1971.

Halldór Einarsson sést hér á bátnum sínum Stalínbjörgu NK-73
Halldór Einarsson sést hér á bátnum sínum Stalínbjörgu NK-73
Skrifað af Valur
11.12.2011 20:27
1460 - Sævar NK 18
Smíðaður á Akureyri 1976 . Eik og fura .Stærð 7 brl . Vél Petters 45 ha .Fyrst skráður 29 júní 1976 eig Ármann Herbertsson hét þá Sævar NK 18 , Seldur 21 okt 1986 Súlum s/f í Ólafsvík hét þá Ívar SH 147. Keyptur til Eyrarbakka 13 ágú 1989 af Helga Ingvassyni skipstjóri. Seldur til Vestmannaeyja 1990
Talinn ónýtur tekinn af skrá 3 nóv 1993.
Upplýsingum um vél og vélarstærð ber ekki saman hjá Aba og Íslensk skip en hjá Aba er vélin sögð vera Izuzu 80 hp.
Heimild:
Íslensk skip.2.bindi,bls 183
Útgerð og bátar frá Eyrarbakka
KS-Akureyri - Síðastliðinn föstudag var hleypt af stokkunum á Akureyri tæplega 7 tonna frambyggðum bát, sem Baldur Halldrirsson á Hliöarenda og synir hans höföu smíðað. Er þetta 45. báturinn, sem Baldur smíðar.Bátnum var gefið nafnib Sævar og ber einkennisstafina NK-18 og er eigandi hans Ármann Herbertsson Neskaupstað. Báturinn mun halda til heimahafnar einhvern næstu daga og þegar hefja línu og handfæraveiðar.Sævar er vel búinn að tækjum m.a. eru í honum talstöð örbylgjustöð,radar, dýptarmælir,vökvaspil og 6 rafknúnar handfærarúllur auk venjulegs öryggisútbúnaðar.Hlíðarendi er um 4 kflómetra frá sjó og var báturinn settur á vagn sem siðan var dreginn af stórum vörubil til sjávar. Mun það örugglega sjaldgæft ef ekki einsdæmi að bátar séu smiðaðir í sveit þetta langt frá sjó.Aðspurður um næstu verkefni í bátasmiðinni sagði Baldur að allt
væri óvíst um þau og enginn bátur væri i pöntun hja sér sem stæði,en vonandi væri þetta tímabundið ástand og menn færu aftur að stunda trilluútgerð i auknum mæli.
væri óvíst um þau og enginn bátur væri i pöntun hja sér sem stæði,en vonandi væri þetta tímabundið ástand og menn færu aftur að stunda trilluútgerð i auknum mæli.
Heimild:
Tímarit.is
Þessi bátur var númer 2 af þremur sem Daddi Herberts átti með nafninu Sævar NK 18.
Skrifað af Valur
10.12.2011 17:19
Vestanstormur á Norðfirði 4.mars 1950
Hér kemur önnur mynd af Sleipni NK við innri-bæjarbryggjuna í vestan óveðri sem gekk yfir á Norðfirði 4.mars 1950 en Björn Björnsson tók myndina,það verður nú að hrósa þessum gömlu fyrir þolinmæðina við þessar myndatökur enda búnaðurinn allt öðruvísi en við eigum að venjast í dag.


Skrifað af Valur
23.11.2011 08:28
Sleipnir NK-54
Sleipnir NK-54 var smíðaður 1926 í Noregi og var 57 brl,með 70 hp.Wichmann vél.Verslun Konráðs Hjálmarssonar átti skipið frá 10.ágúst 1926 þar til um 1930 er skipið var selt Páli Þormar og fleirum og fékk þá einkennisstafina NK-54.1934 var sett í skipið 120 hp.Wichmann vél og 22 sept.1934 eignast Þórður Einarsson,Þórður Björnsson,Gunnar Björnsson og Herbert Þórðarsson frá Neskaupstað skipið sem svo láta lengja það á Akureyri og mælist það þá 72 brl.1944 var sett í skipið 200 hp.Fairbanks vél og í febrúar 1955 var skipið svo selt til Keflavíkur þar sem það fékk einkennisstafina KE-26.Skipið fórst á milli Íslands og Englands þann 5.sept.1961 og bjargaðist áhöfnin um borð í tundurspillirinn Ketchner.
Sleipnir NK var eitt af þeim skipum sem sigldu með fisk til Englands í seinni heimsstyrjöldinni og aðeins einu sinni munu Norðfjarðarbátar hafa orðið fyrir árás en svo bar til að Magnús NK-84 og Sleipnir NK voru í samfloti á leið til Íslands að lokinni löndun ytra.Magnús gekk mun hraðar en Sleipnir eða um 8 mílur og varð úr að Magnús tók Sleipni í tog.Á leiðinni urðu skipverjar varir við flugvél sem flaug lágt og framan við stefni Magnúsar,stuttu seinna byrjaði flugvélin að skjóta á Magnús en ekkert skotanna hæfði og að því búnu lét vélin sig hverfa.

4.mars 1950 lá Sleipnir við innri-bæjarbryggjuna í vestan roki en verið var að gera við vél skipsins og þar af leiðandi komust skipverjar ekki með skipið frá til að halda sjó sem var algengt á árum áður ef veður voru vond,engar skemmdir urðu á Sleipni.Á meðfylgjandi mynd sem Björn Björnsson tók þennan dag má sjá hvernig ástandið var á meðan veðrið gekk yfir.

Sleipnir NK-54 liggur hér við bryggju á Norðfirði á stríðsárunum en við enda bryggjunnar má sjá tvo vopnaða Breska togara.Báturinn sem liggur í fjörunni er Magni NK-68,smíðaður í Noregi 1935 og fórst 9.feb.1945 í róðri á Faxaflóa og með honum 4 menn en einn bjargaðist um borð í Barða frá Húsavík.
Heimild:
Sjómannablaðið Víkingur 43.árg.1981 11-12 tbl.
Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar
Íslensk skip
Heimild:
Sjómannablaðið Víkingur 43.árg.1981 11-12 tbl.
Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar
Íslensk skip
Skrifað af Valur
18.11.2011 19:29
Norðfjörður 1905
Hér kemur mynd frá 1905 af frönskum sjómanni í fjörunni þar sem miðbærinn er í dag en myndin er fengin úr Ægi 10.tbl.frá árinu 1989.

Skrifað af Valur
- 1
